|
|||
![]() |
|||
2017-01-05 11:02:21 CET 2017-01-05 11:02:21 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirLeiðrétting: Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa - Frétt birt 2017-01-04 18:16:19Leiðrétting: Heildar fjárhæð tilboða í ARION CBI 29 leiðrétt Arion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa. Heildareftirspurn í útboðinu var 3.420 m. kr. og fjöldi tilboða var 20. Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 29 bárust sjö tilboð að nafnvirði samtals 1.500 m. kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,02% – 3,10%. Samþykkt voru tilboð í ARION CBI 29 að fjárhæð 1.420 m. kr. á 3,07% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 24.500 m. kr. Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 bárust átta tilboð að nafnvirði samtals 1.160 m. kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,47%–5,54%. Samþykkt voru tilboð í ARION CB 22 að fjárhæð 1.040 m. kr. á 5,50% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 21.200 m. kr. Í óvertryggða flokkinn ARION CB 19 bárust fimm tilboð að nafnvirði samtals 760 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,45%-5,50%. Samþykkt voru tilboð í ARION CB 19 að fjárhæð 160 m.kr. á 5,45% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 1.700 m. kr. eftir útgáfuna. Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem hafa verið til viðskipta á Nasdaq Ísland. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 11. janúar 2017 Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fari fram þann 1. febrúar næstkomandi. Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 64.620 m. kr. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskipasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|