2017-01-05 18:30:25 CET

2017-01-05 18:30:25 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Vátryggingafélag Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

Kaup á rúmlega fimmtungs hlut í Kviku banka hf.


Vátryggingafélag Íslands hf. („VÍS“) hefur náð samkomulagi við fimm núverandi
hluthafa Kviku banka hf. („Kvika“) um kaup á samtals 21,8% hlut í Kviku.
Heildar kaupverð hlutanna er um 1.655 m.kr., sem samsvarar 5,4 kr. á hlut.
Kaupverðið verður greitt að fullu með reiðufé. 

Kvika er sérhæfður fjárfestingarbanki sem veitir sparifjár- og innlánseigendum
alhliða fjármálaþjónustu. Viðskiptin falla vel að langtímahagsmunum VÍS og með
þeim eignast VÍS umtalsverðan hlut í öflugu og framsæknu fjármálafyrirtæki. 

Seljendur á hlutum í Kviku eru Titan B ehf. (7,27%), Ingimundur hf. (6,61%),
Fagfjárfestasjóðurinn Norðurljós (5,77%), Kvika banki hf. (1,27%) og M-804 ehf.
(0,92%). 

Eftir þriðja ársfjórðung 2016 námu fjárfestingareignir VÍS 34,4 milljörðum og
eignir samtals 47,8 milljörðum. Eigið fé félagsins var 15,5 milljarðar og
eiginfjárhlutfall 32,4%. Hluthafar VÍS eru um 800 talsins, stórir og smáir.
Lífeyrissjóðir eru þar umsvifamestir og eiga samtals um 42% hlutafjár með
beinum hætti. 

Kvika starfar meðal annars samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og
lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins.
Kaup VÍS á hlutum í Kviku eru gerð með fyrirvara um samþykki
Fjármálaeftirlitsins á hæfi VÍS til að fara með virkan eignarhlut í Kviku. Í
kjölfar kaupanna verður óskað eftir mati Fjármálaeftirlitsins á hæfi VÍS og
verður tilkynnt um niðurstöðu matsins þegar hún liggur fyrir. 

Jakob Sigurðsson forstjóri VÍS: Með þessum viðskiptum eignast VÍS hlut í öflugu
fyrirtæki sem stendur frammi fyrir spennandi tækifærum. Starfsemi
tryggingafélaga byggist á tveimur meginstoðum; vátryggingastarfsemi og
fjárfestingarstarfsemi. Auk þess að vera gott fjárfestingatækifæri stuðla
kaupin að dreifingu áhættu í eignasafni félagsins og þjóna þannig hagsmunum VÍS
vel til lengri tíma. Af því njóta bæði viðskiptavinir og hluthafar góðs. 

Frekari upplýsingar: Jakob Sigurðsson forstjóri VÍS, s. 660 5179.