2016-11-03 17:07:37 CET

2016-11-03 17:07:37 CET


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Fjarðabyggð - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017 og þriggja ára áætlun 2018-2020


Fimmtudaginn 3. nóvember 2017 var tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn
Fjarðabyggðar fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og stofnana fyrir árið 2017 og
þriggja ára áætlun fyrir árin 2018-2020.  Seinni umræðu bæjarstjórnar um
fjárhagsáætlun 2017 og þriggja ára áætlun 2018-2020 er áætluð 1. desember n.k.. 

Nokkur óvissa er á þessum tímapunkti um endanlega niðurstöðu áætlunarinnar
vegna aðstæðna í ytra umhverfi sveitarfélagsins. er varðar loðnuveiðar á árinu
2017 og gengisstyrkingu íslensku kr. Þá þarf að vinna að aukinni hagræðingu í
rekstri A hluta sveitarfélagsins. Tillagan þarfnast af þeim sökum lengri
umfjöllunar á milli umræðna í bæjarstjórn og kann það að hafa áhrif á efnislega
niðurstöðu hennar. Þá liggur enn ekki endanlega fyrir hvor mótframlag til
lífeyrissjóða mun aukast frá og með áramótum, en það mun auka launakostnað
sveitarfélagsins um 56.millj. kr. 

Rekstrarafgangur samstæðu A og B hluta á árinu 2017 fyrir fjármagnsliði nemur
712 m.kr.  Þar af er rekstrarafgangur A hluta 275 m.kr.  Að teknu tilliti til
fjármagnsliða er rekstrarafgangur hjá samstæðu A og B hluta áætlaður að fjárhæð
319 m.kr. en rekstur í A hluta erí járnum.  Þriggja ára áætlun gerir ráð fyrir
rekstrarafgangi af A hluta og af samstæðu öll árin. 

Eigið fé samstæðu nemur 3.879 m.kr. í árslok 2017 og eiginfjárhlutfall 31,4%. 
Í árslok 2020 er gert ráð fyrir að eigið fé samstæðu nemi 4.813 m.kr. og
eiginfjárhlutfallið verði um 38,3%.  Í A hluta er eigið fé jákvætt um 193 m.kr.
í árslok 2017.  Þriggja ára áætlunin gerir ráð fyrir að eigið fé í A hluta í
árslok 2020 verði 365 m.kr. 

Handbært fé frá rekstri í samstæðunni nemur 1.067 m.kr. á árinu 2017,
fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum 703 m.kr og afborganir
langtímalána 484 m.kr.  Handbært fé í samstæðu verður 150  m.kr. í árslok 2017
og lækkar um 105 m.kr. frá ársbyrjun. 

Skuldaviðmið samstæðu Fjarðabyggðar er komið undir 150% og áætlað 123% í árslok
2017.  Skuldir og skuldbindingar samstæðu, sem hlutfall af heildartekjum, er
áætlað 137,6% í árslok 2017 og 124,5% í árslok 2020.  Framlegðarhlutfall
(EBIDTA) er áætlað rúm 18% í samstæðu og rúm 10% í A hluta á tímabilinu 2017 –
2020 og helst nokkuð stöðugt í langtímaáætlunum sveitarfélagsins. 

Stærstu fjárfestingaverkefni næstu ára eru við hafnarmannvirki vegna aukinna
umsvifa í hafnsækinni starfsemi auk ýmissa minni verkefna í veitum.  Draga mun
nú úr framkvæmdum A hluta við lok byggingar á nýjum leikskóla í Neskaupstað. 

Áætlunin fyrir árið 2017 gerir ráð fyrir 3,9% meðalbreytingum verðlags milli
áranna 2016 og 2017 í samræmi við fyrirliggjandi þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. 
Vænta má að við síðari umræðu liggi fyrir ný þjóðhagsspá ásamt nýju mati á
þróun útsvarstekna.  Áætlunin gerir einungis ráð fyrir 1% hækkun útsvarstekna á
milli áætlana þ.e. frá áætlun 2016 til áætlunar ársins 2017.  Skýrist sú litla
hækkun af þróun sjávarútvegs og  áliðnaðar, styrkingu íslensku krónunnar og
áhrifum viðskiptabanns á innflutning sjávarafurða til Rússlands. 

Í fjárhagsáætluninni er lögð áframhaldandi áherslu á velferð fjölskyldufólks í
Fjarðabyggð. Gjaldskrárhækkunum er almennt mjög stillt í hóf og standast þær
samanburð við önnur sveitarfélög. Þá er systkinaafsláttur  í leikskólum sem og
milli frístundaheimila og leikskóla óbreyttur á milli ár  og er, ásamt
tónlistarskólagjöldum, með því hagstæðasta sem gerist á landinu. 

Sterkir innviðir Fjarðabyggðar draga að sér áhuga fjárfesta. Hefur þessi áhugi
einkum beinst að atvinnuuppbyggingu í hafnsækinni starfsemi, s.s. vegna
olíuleitar á Drekasvæðinu. Þá kallar sterkur og vaxandi sjávarútvegur í
sveitarfélaginu á auknar framkvæmdir í hafnarmannvirkjum.  Framangreint sýnir
sterka stöðu sveitarfélagsins til framtíðar litið, sem endurspeglast m.a. í
þeirri fjárhagsáætlun sem lögð var fram í bæjarstjórn Fjarðabyggðar í dag. 

Nánari upplýsingar um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar veita Páll Björgvin
Guðmundsson bæjarstjóri og Snorri Styrkársson fjármálastjóri í síma 470-9000.