|
|||
2008-02-12 17:51:31 CET 2008-02-12 17:52:32 CET REGULATED INFORMATION Marel Food Systems hf. - Ársreikningur2007 - Hagnaður ársins 6,1 milljón evraHagnaður ársins 6,1 milljón evra Árið 2007 • Sala ársins 2007 nam 290 milljónum evra samanborið við 209 milljónir sem er um 39% aukning frá fyrra ári. Proforma vöxtur sölu á tímabilinu var um 4,5%. Á föstu gengi milli evru og Bandaríkjadollars er proforma aukning 6,1% • Hagnaður ársins 2007 nam 6,1 milljón evra samanborið við 0,2 milljónir árið 2006. • Rekstrarhagnaður EBIT á árinu 2007 var 10,0 milljónir en 7,5 milljónir árið áður. Gjaldfærður einskiptiskostnaður vegna samþættingar nam um 5 milljónum evra á fyrri hluta ársins. Rekstrarhagnaður EBIT, fyrir einskiptiskostnað var 5,2% af sölu (15 milljónir) og 3,6% árið áður. • Veltufé frá rekstri nam 13,0 milljónum evra. Á árinu 2006 var það 2,7 milljónir. • Hagnaður af hlutabréfum í Stork 4,6 milljónir evra • Handbært fé í lok tímabilsins nam 30,4 milljónum evra en var 63,1 milljón í lok árs 2006. Breytingu má rekja til kaupa á hlutafé í Stork NV og aukningar á hlutafé félagsins. Öll hlutabréf í Stork voru seld þann 17. janúar og skilaði það Marel Food Systems 53 milljónum evra eftir uppgreiðslu skulda. • Hlutafé í Marel Food Systems selt fyrir 34,6 milljónir evra á árinu 2007 þar sem íslenskir lífeyrissjóðir bættust í hóp huthafa með öflugum hætti. • Eigið fé nam 182 milljónum evra samanborið við 144 milljónir árið áður og eiginfjárhlutfall var 42,5% í lok árs 2007. • Samningum lokið um kaup félagsins á Stork Food Systems fyrir 415 milljónir og eru þau að fullu fjármögnuð. Beðið er samþykkis samkeppnisyfirvalda í Evrópu. Fjórði ársfjórðungur 2007 • Sala fjórða ársfjórðungs 2007 nam 78,9 milljónum evra samanborið við 71,9 milljónir á sama tíma árið áður. Salan jókst því um 9,7% á milli ára. Á föstu gengi er aukningin 11,8% • Hagnaður tímabilsins nam 3,4 milljónum evra samanborið við 0,5 milljóna evra tap 2006.+ • Rekstrarhagnaður EBIT á timabilinu október til desember 2007 var 1,6 milljónir evra sem er 2,0% af tekjum samanborið við 1,1 milljón í fyrra. • Hlutabréf í hollenska fyrirtækinu Stork NV eru færð á markaðsvirði og koma fram í 5,1 milljón evra hagnaði í hlutdeildarfélagi á fjórða ársfjórðungi. Hörður Arnarson, forstjóri: “Árið 2007 einkenndist af umfangsmikilli samþættingu Marel, Scanvægt, AEW/Delford og Carnitech. Samningar voru undirritaðir um kaup á Stork Food Systems í nóvember síðastliðnum. Við sameiningu Stork og Marel mun Marel samstæðan hafa nánast fimmfaldað stærð sína frá því ný stefna fyrirtækisins var kynnt í upphafi ársins 2006. Megináherslur eru nú á innri vöxt og bætta afkomu. Samþætting fyrirtækjanna hefur í megin atriðum gengið vel og félagið haldið markaðshlutdeild á hratt vaxandi markaði. Það eru vonbrigði að þau samlegðaráhrif sem unnið hefur verið að hafa enn ekki haft merkjanleg áhrif á afkomu félagsins. Nú er reiknað með að rekstrarhagnaður félagsins á árinu 2008 verði um 8%, en hafi náð 10% fyrir lok ársins. Þessi áætun er án áhrifa af Stork Food Systems. Tekjur af kjarnastarfsemi Stork Food Systems á árinu 2007 námu um 300 milljónum evra og rekstrarhagnaður 10,6%. Gert er ráð fyrir áframhaldandi öflugum innri vexti og góðri afkomu af kjarnastarfsemi Stork Food Systems”. Horfur Stór hluti samþættingaverkefna hefur skilað tilætluðum árangri, en ljóst er að nokkur verkefni hafa skilað umtalsverðum neikvæðum áhrifum. Á það bæði við um rekstrareiningar í sölukerfi og vöruflokka. Unnið er að því að endurskipuleggja þessi verkefni til að tryggja viðunandi árangur. Markmið félagsins að ná a.m.k. 10% rekstrarhagnaði (EBIT) er óbreytt og er nú reiknað með að það náist á árinu 2009. Gert er ráð fyrir að rekstrarhagnaður ársins 2008 verði um 8% af veltu. Á fyrri hluta ársins 2008 er áætlað að rekstrarhagnaður verði nokkru minni en fyrir árið í heild. Þessar áætlanir eru án áhrifa af Stork Food Systems. Kjarnastarfsemi Stork Food Systems velti á síðasta ári um 300 milljónum evra og skilaði 10,6% rekstrarhagnaði. Gert er ráð fyirr áframhaldandi sterkum innri vexti og góðri afkomu af kjarnastarfsemi Stork Food Systems. Framundan eru spennandi tímar þar sem megin áhersla er lögð á bætta arðsemi og öflugan innri vöxt byggðan á vöruþróun og markaðssókn inn á nýja markaði. Ársreikningur Marel Food Systems hf fyrir árið 2007 var samþykktur á stjórnarfundi í dag, 12. febrúar 2008. Samstæða Marel Food Systems samanstendur af 32 fyrirtækjum með starfsemi í 22 löndum. Kynningarfundur Marel Food Systems boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins miðvikudaginn 13. febrúar 2008 kl. 8:30 í húsnæði félagsins að Austurhrauni 9 í Garðabæ. Birtingardagar fyrir reikningsárið 2008 og aðalfundur 2009 Aðalfundur Marel Food Systems hf 7. mars 2008 Birtingardagar fyrir reikningsárið 2008: 1. ársfjórðungur 6. maí 2008 2. ársfjórðungur 12. ágúst 2008 3. ársfjórðungur 4. nóvember 2008 4. ársfjórðungur og ársuppgjör 2008 10. febrúar 2009 Aðalfundur Marel Food Systems hf 10. mars 2009 Frekari upplýsingar veitir: Hörður Arnarson, forstjóri Sími: 563-8000 |
|||
|