|
|||
![]() |
|||
2015-06-08 11:22:15 CEST 2015-06-08 11:23:15 CEST REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - FyrirtækjafréttirLánasjóður sveitarfélaga - Tímabundin undanþága á skyldum aðalmiðlara á eftirmarkaðiLánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að veita aðalmiðlurum tímabundna undanþágu á skyldum á eftirmarkaði. Þann 8. júní 2015 er aðalmiðlurum heimilt að leggja ekki fram kaup- og sölutilboð í viðskiptakerfi NASDAQ OMX. Ákvörðunin er tekin til að vernda jafnræði fjárfesta. Áætlað er að opnað verði aftur fyrir viðskipti kl. 14 í dag í kjölfar blaðamannafundar forsætisráðherra og fjármálaráðherra þar sem kynnt verður áætlun um afnám fjármagnshafta. Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson Sími: 515 4947 e-mail: egill@lanasjodur.is |
|||
|