2012-07-26 18:09:57 CEST

2012-07-26 18:10:58 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Aðgerðir Lánamála ríkisins í gjaldeyrisútboði Seðlabanka Íslands 29. ágúst 2012


Í tilkynningu Lánamála ríkisins þann 28. mars 2011 kom fram að kaupendur
gjaldeyris í væntanlegum útboðum Seðlabanka Íslands geta selt ríkissjóði
ríkisvíxla og ríkisbréf með gjalddaga fyrir árslok 2013 til fjármögnunar á
gjaldeyriskaupum. 

Gjaldeyrisviðskiptin munu fara fram með milligöngu viðskiptavaka á
gjaldeyrismarkaði sem eru Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn. Seðlabanki
Íslands hefur tilkynnt að næsta gjaldeyrisútboð verði haldið 29. ágúst
næstkomandi. 

Aðilar sem eiga samþykkt tilboð í gjaldeyrisútboði Seðlabankans eiga þess kost
að selja Lánamálum eftirfarandi ríkisverðbréf miðað við uppgjör 31. ágúst 2012.
Kaupverð á ríkisverðbréfunum verður tilkynnt eftir kl. 16.00 þann 23. ágúst
2012. 



Flokkar     
------------
RIKV 12 0917
------------
RIKV 12 1015
------------
RIKV 12 1115
------------
RIKV 12 1217
------------
RIKV 13 0115
------------
RIKV 13 0215
------------
RIKB 13 0517
------------

 Viðskiptavakar sem ætla að hafa milligöngu um gjaldeyrisviðskipti með
framangreindum ríkisskuldabréfum þurfa að upplýsa Lánamál ríkisins um það eigi
síðar en kl. 09.00 þann 30. ágúst. Ríkisverðbréfin þurfa svo að berast
Lánamálum fyrir klukkan 11.00 þann 31. ágúst. Greiðslur eiga sér stað eftir
afhendingu bréfanna og eigi síðar en klukkan 16.00 sama dag.