2016-03-17 18:53:13 CET

2016-03-17 18:53:13 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Niðurstöður hluthafafunda

Tryggingamiðstöðin hf. - Niðurstöður aðalfundar 17. mars 2016.


Á aðalfundi Tryggingamiðstöðvarinnar hf. í dag, 17. mars 2016, voru samþykktar
tillögur um ráðstöfun tekjuafgangs félagsins, lækkun hlutafjár, heimild til að
kaupa eigin hluti, starfskjarastefnu félagsins og þóknun til stjórnar og
undirnefnda stjórnar. 

Nánar um niðurstöður aðalfundarins vísast til viðhengis sem fylgir tilkynningu
þessari. 

Stjórn félagsins fyrir næsta starfsár var sjálfkjörin eins og áður hefur verið
tilkynnt.  Verkaskipting innan stjórnarinnar er óbreytt frá fyrra starfsári eða
sem hér segir: 

Í aðalstjórn:
Örvar Kærnested formaður,
Kristín Friðgeirsdóttir varaformaður,
Andri Þór Guðmundsson meðstjórnandi,
Linda Björk Bentsdóttir meðstjórnandi, og
Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir meðstjórnandi.

Í varastjórn:
Bjarki Már Baxter og
Bryndís Hrafnkelsdóttir.