2016-04-25 17:51:02 CEST

2016-04-25 17:51:02 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Útboð á nýjum skuldabréfum OR 2. maí


Reykjavík, 2016-04-25 17:50 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Mánudaginn 2. maí 2016
verða boðin til sölu ný skuldabréf Orkuveitu Reykjavíkur, fyrir allt að 4,5
milljarða króna, í tveimur nýjum verðtryggðum flokkum með jöfnum greiðslum til
8 og 30 ára. Fjárfestingarbankasvið Arion banka hefur umsjón með útboðinu og
kynnir það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður lokað og með hollenskri
aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið
verður í hvorum flokki, en OR áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er
að hluta eða í heild eða hafna  öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar
opinberlega næsta virka dag eftir útboð. 


         Nánari upplýsingar veita:
         Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion
banka hf., í síma 444-7337 eða netfanginu verdbrefamidlun@arionbanki.is 
         Ingvar Stefánsson, fjármálastjóri OR, í síma 516-6100 eða netfanginu
ingvar.stefansson@or.is