|
|||
![]() |
|||
2016-04-25 19:33:39 CEST 2016-04-25 19:33:39 CEST REGULATED INFORMATION Reginn hf. - Niðurstöður hluthafafundaNiðurstöður aðalfundar Regins hf. 2016Aðalfundur Regins hf. var haldinn klukkan 16:00 mánudaginn 25. apríl 2016 í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Björtuloftum, Austurbakka 2, 101 Reykjavík. 1. Ársreikningur: Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2015. 2.Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu 2015: Aðalfundur samþykkti að ekki yrði greiddur arður á árinu 2016 en að öðru leyti vísast til ársreikningsins um ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum félagsins á árinu. Hagnaður verður fluttur til næsta árs. 3.Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu: Aðalfundur samþykkti framlagða starfskjarastefnu fyrir félagið að viðbættri viðauka- og breytingartillögu frá Gildi lífeyrissjóði sem stjórn gerði að sinni. 4.Heimild til kaupa á eigin hlutum: Ekki var lögð fram tillaga um framlengingu heimildar stjórnar til kaupa á eigin bréfum. Núgildandi heimild mun falla niður í október 2016. 5. Breyting á samþykktum félagsins: Stjórn Regins hf. lagði ekki til við aðalfund breytingu á samþykktum félagsins. 6. Kosning félagsstjórnar: Framkomið framboð Vignis Óskarssonar var dregið ti baka á fundinum sjálfum og því eru sjálfkjörin í aðalstjórn félagsins til næsta aðalfundar: Albert Þór Jónsson, Benedikt K. Kristjánsson, Bryndís Hrafnkelsdóttir, Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, Tómas Kristjánsson, Eftirtalin voru sjálfkjörin í varastjórn: Finnur Reyr Stefánsson, Hjördís D. Vilhjálmsdóttir. 7. Kosning endurskoðanda: Aðalfundur samþykkti að KPMG ehf., Borgartúni 27, 105 Reykjavík, yrði endurkjörið endurskoðunarfyrirtæki félagsins. 8. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir næsta kjörtímabil: Aðalfundur félagsins samþykkti eftirfarandi þóknun til stjórnarmanna, varastjórnar og undirnefnda stjórnar: Stjórnarformaður: 550.000 kr. á mánuði. Meðstjórnendur: 275.000 kr. á mánuði. Varamenn: 140.000 kr. fyrir hvern setinn stjórnarfund, þó ekki hærra en 275.000 kr. fyrir hvern mánuð. Seta í undirnefndum stjórnar: 55.000 kr. fyrir hvern setinn fund. |
|||
|