|
|||
2009-03-19 10:27:10 CET 2009-03-19 10:27:54 CET REGULATED INFORMATION Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - FyrirtækjafréttirStraumur sækir um heimild til greiðslustöðvunar19. mars Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. (Straumur) hefur farið þess á leit við Héraðsdóm Reykjavíkur að bankanum verði veitt heimild til greiðslustöðvunar. Tilgangur greiðslustöðvunarinnar er að koma nýrri skipan á fjármál félagsins og gera félagið rekstrarhæft á ný í samvinnu við lánadrottna. Nánari upplýsingar veitir: Georg Andersen Forstöðumaður Samskiptasviðs s: 585 6707 georg@straumur.com |
|||
|