|
|||
![]() |
|||
2008-03-31 11:03:23 CEST 2011-09-16 12:25:04 CEST HB Grandi hf. - Niðurstöður aðalfundaNiðurstöður aðalfundar HB Granda hf., haldinn 28. mars 2008.Aðalfundur samþykkti samhljóða bæði ársreikning félagsins og skýrslu stjórnar. Fundurinn samþykkti eftirfarandi tillögur: Arðgreiðsla “Aðalfundur HB Granda hf. haldinn 28. mars 2008 samþykkir að greiddur verði 12% arður (0,12 kr á hlut) vegna ársins 2007, alls að fjárhæð 203.850.535 kr. Arðurinn verði greiddur 28. apríl 2008. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 28. mars 2008 og arðleysisdagur því 31. mars 2008. Arðsréttindadagur er 2. apríl 2008. (Arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá að loknu uppgjöri Verðbréfaskráningar Íslands fyrir kl. 9:00 þann 2. apríl 2008)” Þóknun til stjórnarmanna “Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár kr. ¬¬¬¬800.000-. Formaður taki þrefaldan hlut.” Kosning endurskoðanda “Endurskoðunarfélag: KPMG hf.” Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum “Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildar¬hlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupverð hluta skal vera hæst 15% yfir síðasta þekktu söluverði á First North markaðinum áður en kaup eru gerð.” Kjör stjórnar Á fundinum voru eftirtaldir aðilar kjörnir í stjórn félagsins: Aðalmenn: Árni Vilhjálmsson, Halldór Teitsson, Hjörleifur Jakobsson, Kristján Loftsson, og Ólafur Ólafsson. Varamaður: Guðmundur A. Birgisson. |
|||
|