2017-11-27 11:41:44 CET

2017-11-27 11:42:22 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstöður skilyrts endurkaupatilboðs


Landsbankinn  hf. tilkynnti í dag  um niðurstöður endurkaupatilboðs sem tilkynnt
var    þann   20. nóvember   2017 til   eigenda   skuldabréfa   í   flokki   EUR
300.000.000 3,00% á  gjalddaga  árið  2018 (ISIN:  XS1308312658) þar sem bankinn
bauðst   til   að   kaupa   skuldabréfin   til  baka  gegn  greiðslu  reiðufjár.
Endurkaupatilboðið   byggði  á  skilmálum  endurkaupatilboðs  (e.  tender  offer
memorandum) dagsett 20. nóvember 2017.

Bankanum bárust gild tilboð að fjárhæð EUR 199.620.000 og var gengið að tilboðum
að  fjárhæð  EUR  150.000.000 með  samþykktarhlutfallinu  (e.  pro  rata scaling
factor) 75,6770%.

Nánari  upplýsingar um  niðurstöður endurkaupatilboðs  má finna  í tilkynningu í
írsku kauphöllinni (www.ise.ie) þar sem skuldabréfin eru skráð.


[]