2012-09-03 16:07:41 CEST

2012-09-03 16:08:41 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga - Fyrirtækjafréttir

Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Tilkynning um innköllun á skuldabréfaflokki LSS 05 4


Lánasjóður sveitarfélaga ohf. kt. 580407-1100, hefur ákveðið að nýta sér rétt
til innköllunar á öllum skuldabréfum í flokki LSS 05 4, ISIN IS0000011575 . 

Útgáfudagur skuldabréfanna var 27. september 2005. Samkvæmt skilmálum þeirra
hefur Lánasjóður sveitarfélaga ohf. heimild til uppgreiðslu á hverjum gjalddaga
frá og með 1. október 2010. 

Innköllunin miðast við 1. október 2012. Skuldin verður greidd í samræmi við
skilmála bréfanna. Vísað er að öðru leyti til skilmála bréfanna. 

Skuldabréfin og vextir af þeim verða, fyrir milligöngu Verðbréfaskráningar,
greidd til þeirra reikningsstofnana sem skráðir eigendur skuldabréfanna hafa
VS-reikning hjá. Viðkomandi reikningsstofnanir annast endanlegar greiðslur inn
á bankareikninga eigenda. 

Skuldabréfin eru skráð í Nasdaq OMX Iceland hf. og verður óskað eftir
afskráningu þeirra að lokinni innköllun. 

Nánari upplýsingar veitir:
Egill Skúli Þórólfsson
Sími: 515 4947
e-mail: egill@lanasjodur.is