2012-09-03 17:09:49 CEST

2012-09-03 17:10:51 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsbréf hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Nýr framkvæmdastjóri Landsbréfa hf.


Sigþór Jónsson hefur nú hafið störf sem framkvæmdastjóri Landsbréfa hf.  Sigþór
er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í löggildri
verðbréfamiðlun. Sigþór hefur mikla reynslu af íslenskum fjármálamarkaði og
fjárfestingastarfsemi. Síðast gegndi hann starfi forstöðumanns sérhæfðra
fjárfestinga hjá Stefni hf. og leiddi meðal annars uppbyggingu framtakssjóða
Stefnis hf. í atvinnuhúsnæði og fyrirtækjum.