2015-11-09 16:50:00 CET

2015-11-09 16:50:36 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Eik fasteignafélag hf.: Nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs


Lýður  Heiðar Gunnarsson  hefur verið  ráðinn nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Eikar  fasteignafélags hf. Hann mun taka við starfinu af Kolbeini Friðrikssyni á
næstu mánuðum.

Lýður  er  viðskiptafræðingur  að  mennt  frá  Háskólanum  í  Reykjavík  og lauk
meistaraprófi  í  fjárfestingarstjórnun  frá  sama  skóla árið 2010. Þá er Lýður
löggiltur   verðbréfamiðlari.   Eiginkona   Lýðs   er   Vigdís  Ósk  Helgadóttir
fjármálastjóri og eiga þau tvo syni.

Lýður  hefur  víðtæka  reynslu  úr  fjármálakerfinu.  Frá  árinu 2009 hefur hann
starfað hjá Lífsverki lífeyrissjóði, nú síðast sem forstöðumaður eignastýringar.
Þá  starfaði  hann  á  fjármálasviði  FL  Group  hf.  og  á  eignastýringarsviði
Landsbanka  Íslands hf. frá árinu 2002. Lýður  hefur setið í ýmsum stjórnum eins
og  stjórn Nýs Norðurturns hf. og í verðbréfafyrirtækinu Virðingu hf. Þá er hann
m.a.  formaður  fjárfestingaráðs  Kjölfestu  slhf.  og  situr í fjárfestingaráði
Fjárfestingafélags Atvinnulífsins hf.

Lýður  hefur víðtæka þekkingu úr fjármálakerfinu  sem mun nýtast félaginu vel og
efla   það  til  framtíðar.   Hann  hefur  hagnýta  reynslu  af  samskiptum  við
fjárfestatengla  skráðra félaga  og hefur  unnið við  fjárstýringu, áætlanagerð,
uppgjör  og gerð ársreikninga.  Þá hefur  hann einnig unnið að  fasteignatengdum
verkefnum, þ.á.m. greiningu og fjárfestingum í fasteignafélögum."Það  verður mikill  liðsstyrkur fyrir  Eik fasteignafélag  að fá Lýð til starfa
enda  er  hann  með  góða  reynslu  úr  viðskiptalífinu."  segir  Garðar  Hannes
Friðjónsson forstjóri Eikar.

Garðar   vill   þakka   Kolbeini   Friðrikssyni,   fráfarandi   framkvæmdastjóra
fjármálasviðs  Eikar, fyrir  vel unnin  störf undanfarin  tvö ár  sem hafa verið
viðburðarík  hjá Eik fasteignafélagi og óskar honum velfarnaðar á nýjum stað. Þá
vill  Garðar jafnframt  þakka þann  mikla áhuga  á félaginu sem fjölmargar góðar
umsóknir í starfið báru vitni um.

Nánari upplýsingar veitir:
Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200 / 861-3027.



[HUG#1965583]