2015-11-10 14:28:30 CET

2015-11-10 14:29:30 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Fyrirtækjafréttir

Tryggingamiðstöðin - Skuldabréfaflokkurinn TM 15 1 - Viðauki


Neðangreindu ákvæði hefur að beiðni Nasdaq OMX Iceland verið bætt við
útgáfulýsingu skuldabréfaflokksins TM 15 1 sem gefin var út af
Tryggingamiðstöðinni þann 11. september 2015. 

Um er að ræða 3. mgr. liðsins „Sérstök skilyrði“ (liður 1.3.5).

Viðbæturnar eru eftirfarandi:

Til að taka af allan vafa, þá fá kröfuhafar skuldabréfa þessara greiddar
frestaðar vaxtagreiðslur við formleg slit á útgefanda í sömu kröfuröð og aðrar
kröfur á grundvelli skuldabréfa þessara, enda sé að öðru leyti innstæða fyrir
slíkri útborgun í þrotabúi útgefanda þegar að útborgun úr þrotabúi kemur. 

Þeir aðilar sem hafa skráð sig fyrir kaupum á skuldabréfum í framangreindum
skuldabréfaflokki hafa þegar samþykkt að ofangreind breyting verði gerð á
útgáfulýsingunni og hefur hún þegar tekið gildi. 

3. mgr. undir liðnum „Sérstök skilyrði“ er því eftir viðbæturnar svo hljóðandi:

Skylda útgefanda til greiðslu frestaðrar vaxtagreiðslu skal, þrátt fyrir
framangreint, ekki vera til staðar á þeim tímapunkti ef (i) útgefandi uppfyllir
ekki ákvæði laga um gjaldþol eða mun ekki uppfylla þau ákvæði í kjölfar
greiðslu frestaðrar vaxtagreiðslu, eða (ii) útgefanda er skylt að fresta áfram
greiðslu vaxta skuldabréfa þessara til að skuld samkvæmt skuldabréfum þessum
uppfylli skilyrði laga til að mynda grunn að útreikningi gjaldþols útgefanda.Til að taka af allan vafa, þá fá kröfuhafar skuldabréfa þessara greiddar
frestaðar vaxtagreiðslur við formleg slit á útgefanda í sömu kröfuröð og aðrar
kröfur á grundvelli skuldabréfa þessara, enda sé að öðru leyti innstæða fyrir
slíkri útborgun í þrotabúi útgefanda þegar að útborgun úr þrotabúi kemur. 



Meðfylgjandi er bréf Artica Finance hf. og Tryggingamiðstöðvarinnar til Nadsaq
verðbréfamiðstöðvar þar sem óskað er eftir viðbótunum.