|
|||
2015-11-10 16:31:00 CET 2015-11-10 16:31:02 CET SÄÄNNELTY TIETO Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 16 0215 og RIKV 16 0517Fimmtudaginn 12. nóvember kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 16 0215 og RIKV 16 0517 sem eru með gjalddaga 15. febrúar og 17. maí 2016. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 16. nóvember 2015. Sótt verður um að RIKV 16 0517 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ á Íslandi þriðjudaginn 17. nóvember 2015. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635. |
|||
|