2016-08-30 13:25:54 CEST

2016-08-30 13:25:54 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

REITIR: Birting viðauka við grunnlýsingu


Reitir fasteignafélag hf. kt. 711208-0700, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík,
hefur birt viðauka við grunnlýsingu dagsetta 6. júní 2016 sem birt var í
tengslum við útgáfuramma skuldabréfa. Viðaukinn er dagsettur 30. ágúst 2016 og
varðar árshlutareikning samstæðu Reita fasteignafélags hf. sem birtur var þann
18. ágúst 2016. Viðaukinn er staðfestur af Fjármálaeftirlitinu og skoðast sem
hluti af grunnlýsingunni. 

Viðaukinn er birtur á vefsíðu útgefanda, www.reitir.is/fjarfestar.
Grunnlýsinguna og viðaukann má nálgast á vefsíðunni á gildistíma
grunnlýsingarinnar og hjá útgefanda á skrifstofu félagsins í Kringlunni 4-12 í
Reykjavík. 

Nánari upplýsingar veitir:

Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma
669-4416.