2016-08-30 14:29:58 CEST

2016-08-30 14:29:58 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Spölur ehf. - Ársreikningur

Spölur - Árshlutauppgjör 1. janúar 2016 til 30. júní 2016


  -- Hagnaður Spalar ehf eftir skatta fyrir tímabilið 1. janúar 2016 til 30.
     júní 2016 nam kr. 241,8 m.kr. en hagnaður á tímabilinu 1. janúar 2015 til
     30. júní 2015 nam 168,6 m.kr. Hagnaður Spalar ehf eftir skatta á öðrum
     ársfjórðungi félagsins sem er 1. apríl 2016 til 30. júní 2016 nam 171,4
     m.kr. Á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 114,2 m.kr.
  -- Greiðsluflæðið gefur hins vegar betri mynd af gangi félagsins þar sem
     verðbætur vegna vísitöluhækkana lána dreifast til greiðslu fram til loka
     lánstímans, þ.e. 2018. Greiðslugeta félagsins undanfarin 5 ár hefur verið
     sterk. Um 700 mkr. (2014:643 mkr.) voru greiddar í afborganir og vexti á
     tímabilinu 1. janúar 2015 til 31. desember 2015 og nauðsynlegt
     umframfjármagn var að auki til staðar 31. desember 2015 eins og
     lánasamningar gera ráð fyrir.
  -- Veggjald nam 625,3 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins til samanburðar við 533,2
     m.kr. árið áður sem er 17,3% hækkun.
  -- Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrstu 6 mánuði ársins nam 218
     m.kr. og hækkar um rúmar 27 m.kr frá árinu áður þegar hann nam 191 m.kr.
     Helstu breytingar eru vegna aukins viðhalds- og launakostnaðar.
  -- Afskriftir á tímabilinu námu 60 m.kr., og voru á sama tímabili árið áður 61
     m. kr.
  -- Vaxtagjöld og verðbætur lækka á milli tímabila um 23 m. kr.
  -- Skuldir Spalar ehf hækka úr 2.646 m.kr. þann 31. desember 2015 í 2.796
     m.kr. þann 30. júní 2016.
  -- Spölur ehf er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf.





Um uppgjörið

Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu meiri
en áætlanir fyrir fyrstu 6 mánuði rekstrarársins gerðu ráð fyrir. Gert er ráð
fyrir að árið í heild verði nokkuð umfram áætlanir. 



Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma
433 5910.