2010-06-15 18:31:18 CEST

2010-06-15 18:32:14 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Lífeyrissjóður verzlunarmanna fjárfestir fyrir milljarð króna í Icelandair Group


Í dag gerði Lífeyrissjóður verzlunarmanna bindandi samkomulag við Icelandair
Group hf. þess efnis að sjóðurinn muni fjárfesta í fyrirtækinu fyrir 1 milljarð
króna og eignast með því 12% hlut í félaginu. Lífeyrissjóður verzlunarmanna mun
skrá sig fyrir 400 milljónum nýrra hluta á genginu 2,5 - alls fyrir 1 milljarð
króna. 

Samningurinn er gerður í kjölfar samnings Framtakssjóðs Íslands um kaup á nýju
hlutafé í Icelandair Group fyrir þrjá milljarða króna sem tilkynnt var um í
gær. Kaup sjóðsins fara fram á sama gengi. Samningurinn við Lífeyrissjóð
verzlunarmanna er gerður með hefðbundnum fyrirvara um niðurstöðu
áreiðanleikakönnunar. 

Með samningnum hefur Icelandair Group aflað samtals 4 milljarða af reiðufé með
sölu á nýju hlutafé á tveimur dögum. Auk þess hafa stærstu lánveitendur
félagsins skuldbundið sig til að breyta skuldum að fjárhæð 3,6 milljarðar króna
í hlutafé miðað við gengið 5, þannig að þeir munu skrá sig fyrir 720 milljón
nýjum hlutum. 

Við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins er gert ráð fyrir að skuldir
þess verði lækkaðar um ríflega 10 milljarða króna m.a. með yfirfærslu og sölu á
tilteknum eignum sem eru ekki hluti af kjarnastarfsemi félagsins, eins og fram
kom í tilkynningu til Kauphallarinnar þann 25. mars sl. 

Gert er ráð fyrir að fjárfestum og almenningi verði gefinn kostur á að leggja
félaginu til nýtt hlutafé í hlutafjárútboðum síðar á árinu. 

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group
„Ég er mjög ánægður með fjárfestingu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna í Icelandair
Group. Á tveimur dögum hefur okkur tekist að breikka hluthafahóp félagsins
verulega enda eiga langflestir launamenn landsins hagsmuna að gæta með sparifé
sitt í Framtakssjóðnum og lífeyrissjóðnum. Fjárfesting lífeyrissjóðsins mun
auka enn á styrk félagsins og getu þess til að styrkja frekar stöðu
ferðaþjónustunnar sem einnar mikilvægustu atvinnugreinar landsins.“ 

Frekari upplýsingar veitir:
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími  896-1455