|
|||
2009-11-02 14:46:50 CET 2009-11-02 14:47:50 CET REGULATED INFORMATION Atorka Group hf. - FyrirtækjafréttirInnköllun umsjónarmanns með nauðasamningsumleitunumMeð úrskurði héraðsdóms Reykjaness, uppkveðnum 26. október 2009, var Atorka Group hf., kt. 600390-2289, Hlíðarsmára 1, Kópavogi, veitt heimild til að leita nauðasamnings. Hér með er skorað á alla þá, sem telja sig eiga samningskröfur samkvæmt 1. mgr. 29. gr. laga nr. 21/1991 á hendur félaginu, að lýsa þeim fyrir undirrituðum umsjónarmanni með nauðasamningsumleitunum innan fjögurra vikna frá fyrri birtingu þessarar innköllunar. Kröfulýsingar skulu sendar á nafn umsjónarmanns að Lágmúla 7, 108 Reykjavík. Fundur verður haldinn með þeim lánardrottnum, sem eiga atkvæðisrétt um samningsfrumvarp skuldarans, á skrifstofu undirritaðs að Lágmúla 7, Reykjavík, fimmtudaginn 10. desember 2009 kl. 15.00, til þess að greiða þar atkvæði um frumvarpið. Reykjavík, 27. apríl 2009. Brynjar Níelsson hrl. |
|||
|