2011-08-11 15:47:37 CEST

2011-08-11 15:48:38 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsnet hf. - Ársreikningur

Árshlutareikningur Landsnets hf. fyrir tímabilið janúar-júní 2011


Tap tímabilsins nam 133 milljónum króna

Tap Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 133 mkr. fyrir fyrstu 6 mánuði
ársins 2011 samanborið við hagnað að fjárhæð 1.034 mkr. fyrir sama tímabil árið
2010. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) nam 4.358
mkr. samanborið 4.645 mkr. á sama tímabili fyrra árs og lækkar því um 287 mkr.
á milli ára. Verri afkoma á fyrri helmingi ársins 2011 í samanburði við fyrri
helming fyrra árs stafar að mestu af breytingum í fjármagnsliðum og felst
aðallega í hærri verðbólgu á fyrstu 6 mánuðum ársins 2011 og meira gengistapi
miðað við sama tímabil árið áður. Hrein fjármagnsgjöld nema samtals 3.292 mkr.
á tímabilinu á móti 2.185 mkr. á sama tímabili ársins 2010. Hrein
fjármagnsgjöld hækka því um 1.107 mkr. á tímabilinu janúar-júní 2011 í
samanburði við sama tímabil 2010. 

Eiginfjárhlutfall í lok júní var 16,1% samanborið við 16,5% í lok ársins 2010.
Eigið fé í lok tímabilsins nam 11.489 mkr. samanborið við 11.622 í lok árs
2010. Heildareignir félagsins í lok júní námu 71.404 mkr. samanborið við 70.513
mkr. í lok árs 2010. Heildarskuldir námu 59.914 mkr. samanborið við 58.891 mkr.
í lok árs 2010. 

Lausafjárstaða félagsins er sterk, í lok júní nam handbært fé 6.542 mkr.
Handbært fé frá rekstri fyrstu 6 mánuði ársins nam 2.453 mkr. samanborið við
3.048 mkr. á sama tímabili árið 2010. 

Árshlutareikningur Landsnets hf. var samþykktur á fundi stjórnar 11. ágúst 2011.



Frekari upplýsingar veitir:

Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála, sími 563 9311 eða netfang
gudlaugs@landsnet.is 



Sjá viðhengi