|
|||
2014-10-23 14:56:41 CEST 2014-10-23 14:57:42 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirMánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs september 2014Vanskil fara enn minnkandi Í september á þessu ári voru 2.742 heimili i í vanskilum við Íbúðalánasjóð að meðtöldum lánum í frystingu. Á sama tíma á síðasta ári var sambærilegur fjöldi heimila 4.230 og fer heimilum í vanskilum því jafnt og þétt fækkandi. Undirliggjandi lánavirði vanskila fer einnig minnkandi því í september þetta árið er hlutfall lánavirðis í vanskilum einstaklinga 8,64% af heildarlánum sjóðsins, en var 12.26% á sama tíma í fyrra. 297 fullnustueignir hafa bæst í eignasafn Íbúðalánasjóðs frá áramótum, en á sama tíma hefur sjóðurinn selt 862 eignir, þar af 43 eignir í septembermánuði. Þetta og fleira kemur fram í mánaðarskýrslu sjóðsins fyrir september 2014 sem nú er aðgengileg á heimasíðu Íbúðalánasjóðs. |
|||
|