|
|||
2014-10-23 18:04:10 CEST 2014-10-23 18:05:10 CEST REGULATED INFORMATION HB Grandi hf. - FyrirtækjafréttirHB Grandi hf. – Viðræður um sölu á eignarhlut í Stofnfiski hf.HB Grandi hefur ákveðið að ganga til viðræðna við ákveðinn fjárfesti um hugsanlega sölu á eignarhluta félagsins í Stofnfiski hf. Stofnfiskur hf. er stærsti framleiðandi á Íslandi á laxahrognum og er fyrirtækið auk þess leiðandi í kynbótarannsóknum fyrir fiskeldi. Eignarhlutur HB Granda hf. í Stofnfiski hf. nemur 64,94% af hlutafé félagsins og var bókfært verð eignarhlutarins, samkvæmt ársreikningi HB Granda vegna ársins 2013, skráð 7,1 milljónir evra í árslok 2013. Ekki er hægt að áætla á þessum tímapunkti hversu lengi viðræður munu standa yfir en viðræðurnar eru bundnar nokkrum skilyrðum og fyrirvörum. Félagið mun veita frekari upplýsingar eftir því sem viðræðum vindur fram. Nánari upplýsingar veitir: Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, sími: 858 1007 |
|||
|