2016-06-16 13:39:06 CEST

2016-06-16 13:39:06 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

Útgáfa skuldabréfa RVKN 35 1 vegna viðskiptavaktar


Í tengslum við endurnýjun aðalmiðlarasamnings skuldabréfa Reykjavíkurborgar og
viðskiptavaktar á eftirmarkaði sem staðfestur var í borgarráði 26. maí sl. var
tekin upp viðskiptavakt með skuldabréfaflokkinn RVKN 35 1. Reykjavíkurborg
gefur því út skuldabréf að fjárhæð 320 mkr að nafnvirði í skuldabréfaflokknum
RVKN 35 1 vegna fyrirgreiðslu til handa viðskiptavökum skuldabréfa. Stærð
flokksins er nú 3.480.000.000,- kr. 

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 411-1111
Netfang: bbs@rvk.is