2017-11-20 16:34:34 CET

2017-11-20 16:35:00 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Skeljungur hf. - Viðskipti félags með eigin bréf

Skeljungur hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 46. viku 2017, keypti félagið 4.996.200 eigin hluti fyrir 37.721.310 kr. eins
og hér segir:



 Dagsetning Tími     Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð

 17.11.2017 09:52:28      4.996.200          7,55 37.721.310

    Samtals               4.996.200               37.721.310
------------------------------------------------------------


Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. nóvember 2017, sbr. tilkynningu til
Kauphallar þann 7. nóvember 2017.



Skeljungur  hefur  nú  keypt  samtals  19.984.800 hluti í félaginu sem samsvarar
9,29% af  þeim eigin  hlutum sem  að hámarki  verða keyptir  samkvæmt núgildandi
áætlun.  Kaupverð  hinna  keyptu  hluta  nemur  samtals  150.135.810 krónum  sem
samsvarar 21,45% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Skeljungur
á nú samtals 19.984.800 hluti eða 0,929% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt  endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 215.203.185 hlutir, þ.e.
10% eigin fjár, en fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en 700 milljónir
króna.  Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar  öðru hvoru framangreindu hefur
verið náð eða á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í
samræmi við lög nr. 2/1995 um hlutafélög og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.



Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs,
fjarfestar@skeljungur.is, s: 840-3071.


[]