2008-03-11 19:31:00 CET

2008-03-28 14:21:22 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Glitnir banki hf. - Fyrirtækjafréttir

Glitnir gefur út breytanleg skuldabréf


Styrkir eiginfjárhlutfall bankans umtalsvert.

Stjórn Glitnis banka hf. hefur tekið ákvörðun um að gefa út breytanleg
skuldabréf. Skuldabréfin verða víkjandi og teljast til eiginfjárþáttar A í
reikningum félagsins. Heildarfjárhæð útgáfunnar verður allt að fimmtán
milljarðar króna. Skuldabréfin breytast að fimm árum liðnum í hlutabréf í
Glitni banka hf. á fyrirframákveðnu gengi, í samræmi við nánari ákvæði
skuldabréfsins. 

Skuldabréfin gefa fjárfestum fasta verðtryggða ávöxtun til fimm ára, auk þess
sem fjárfestar njóta góðs af jákvæðri verðþróun hlutabréfanna á tímabilinu.
Útgáfan telst til eiginfjárþáttar A og styrkir þannig eiginfjárhlutfall Glitnis
umtalsvert. 

Skuldabréfin verða seld í lokuðu útboði til fagfjárfesta á tímabilinu 12.-17.
mars 2008. Áætlað er að gefa skuldabréfin út fyrir 31. mars 2008 og að því
loknu verður sótt um skráningu á markað OMX Nordic Exchange á Íslandi. 

Útgáfa skuldabréfanna og heimild til hækkunar hlutafjár er háð samþykki
hluthafafundar. Hluthafafundur verður haldinn miðvikudaginn 19. mars 2008 kl.
9:00 í höfuðstöðvum Glitnis banka hf. 

“Útgáfa breytanlegra skuldabréfa Glitnis er góður kostur fyrir fjárfesta um
þessar mundir. Bréfin eru höfuðstólstryggð, gefa fasta verðtryggða vexti í fimm
ár og breytast í hlutabréf að fimm árum liðnum. Fjárfestar njóta þar með góðs
af jákvæðri verðþróun á tímabilinu.  Útgáfan styrkir eiginfjárhlutfall Glitnis
verulega og er ein fjölmargra fjármögnunarleiða bankans.“ segir Alexander K.
Guðmundsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Glitnis. 

Nánari upplýsingar:

Már Másson, forstöðumaður kynningarmála, sími 844-4990, netfang:
mar.masson@glitnir.is

Vala Pálsdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 844-4989,
netfang: vala.palsdottir@glitnir.is