2009-05-14 16:44:52 CEST

2009-05-14 16:46:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Glitnir sjóðir - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

- Ný stjórn Íslandssjóða


•	Þrír stjórnarmenn af fjórum óháðir Íslandsbanka
•	Fyrirtækið var með tæplega 133 milljarða króna í stýringu um síðustu áramót

Ný stjórn Íslandssjóða hefur tekið til starfa en fyrirtækið er dótturfélag
Íslandsbanka og rekur verðbréfa- og fjárfestingasjóði bankans. Ný stjórn
félagsins samanstendur af eftirfarandi aðilum: 

Ársæll Valfells, viðskiptafræðingur
Bolli Héðinsson, hagfræðingur
Elín Jónsdóttir, lögfræðingur
Steinunn Bjarnadóttir, forstöðumaður reksturs og innra eftirlits Eignastýringar
Íslandsbanka 

Leitast var við að hafa stjórn Íslandssjóða óháða bankanum, og því er einungis
einn af fjórum stjórnarmönnum í aðalstjórn félagsins starfsmaður bankans.
Varastjórn skipa þau Erna Eiríksdóttir, Kristrún Auður Viðarsdóttir, Reimar
Snæfells Pétursson og Stefán Sigurðsson. 

Íslandssjóðir eru leiðandi sjóðastýringarfyrirtæki á íslenska markaðnum og var
með tæplega 133 ma. króna í stýringu við síðustu áramót. Fyrirtækið er í
fremstu röð á Íslandi þegar kemur að rekstri ríkisskuldabréfasjóða, auk þess að
reka fjölmarga aðra verðbréfasjóði og annast safnastýringu fyrir fagfjárfesta
og lífeyrissjóði. 


Nánari upplýsingar gefa:

Gunnar Kr. Sigurðsson, sérfræðingur á samskiptasviði Íslandsbanka, s. 844 4895
gunnarks@islandsbanki.is 

Agla Hendriksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandssjóða, s. 844 4917
agla.hendriksdottir@islandsbanki.is