|
|||
![]() |
|||
2015-04-21 11:55:29 CEST 2015-04-21 11:55:43 CEST REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hlutaFjarskipti hf. : Lækkun hlutafjár í Fjarskiptum hf.Þannn 19. mars síðastliðinn var samþykkt á aðalfundi Fjarskipta hf., sbr. tilkynningu til kauphallar sama dag, að hlutafé félagsins skyldi lækkað um kr. 46.261.100 að nafnverði, eða sem nemur 4.626.110 hlutum, á grundvelli VIII. kafla laga nr. 2/1995, um hlutafélög, til jöfnunar eigin hluta. Lagaskilyrðum fyrir lækkun hlutafjárins hefur nú verið fullnægt. Hlutafé félagsins hefur því verið lækkað úr kr. 3.407.649.990 í kr. 3.361.388.890 að nafnverði, og nemur þá alls 336.138.889 hlutum. Lækkunin tekur einvörðungu til eigin hluta félagsins sem það hafði eignast með kaupum á markaði undanfarin misseri, í samræmi við samþykkta endurkaupaáætlun stjórnar sem aðalfundur 2014 veitti heimild fyrir. Miðast lækkunin við stöðu endurkaupa við lok síðasta reikningsárs. Niðurfærslan hefur ekki áhrif á hlutafé í eigu annarra hluthafa en félagsins sjálfs. [HUG#1912812] |
|||
|