|
|||
2015-04-21 12:56:21 CEST 2015-04-21 12:57:22 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirReitun hefur uppfært lánshæfismat á Arion banka hf.Mat Reitunar á lánshæfi Arion banka hefur hækkað í i.A2 með stöðugum horfum og lánshæfismat sértryggða skuldabréfa bankans hefur hækkað í hæstu mögulegu einkunn eða i.AAA með stöðugum horfum. Lánshæfismat bankans var áður i.A3 með stöðugum horfum. Í greiningu Reitunar kemur fram að áframhaldandi bati í eignagæðum, hækkandi eiginfjárþáttur A, góð arðsemi af kjarnastarfsemi og ágætar hagvaxtarhorfur séu meginástæður hækkunar á lánshæfiseinkunn. Þá hefur úrvinnsla vandræðalána gengið samkvæmt áætlun og gæði lánasafnsins aukist til muna auk þess sem hlutfall íbúðalána í lánasafni hefur hækkað og veðstaða áfram batnað samhliða hækkandi fasteignaverði. Horfur eru á að lánshæfi bankans gæti batnað enn frekar þegar óvissuþættir í rekstrarumhverfinu skýrast betur, með bættum gæðum útlánasafnsins og stöðugleika í rekstri. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|