2009-08-13 10:43:41 CEST

2009-08-13 10:44:41 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landic Property hf. - Fyrirtækjafréttir

Landic Property selur Magasin og Illum fasteignirnar


Fasteignafélagið Landic Property hf. hefur selt fasteignirnar í Landic Property
II A/S fasteignasafninu (Magasin og Illum fasteignirnar) til hóps fjárfesta þ.á
m. Straums-Burðaráss fjárfestingabanka.  Fasteignasafnið samanstendur af 6
fasteignum í Danmörku en fimm þeirra hýsa verslanir Magasin og Illum auk
vöruhúss. Samkomulag er á milli aðila að gefa ekki upp kaupverðið. 

Viðar Þorkelsson, forstjóri Landic Property segir: „Ég er ánægður með að okkur
hefur tekist að ljúka þessari sölu en með nýju eignarhaldi fasteignanna verða
þær og rekstur verslana á sömu hendi. Þessi samningur er mikilvægur áfangi í
endurskipulagningu Landic Property sem í framhaldinu mun einbeita sér að
rekstri fasteigna á Íslandi.” 

Frekari upplýsingar veitir:
Viðar Þorkelsson
forstjóri Landic Property hf.
Sími 575 9000
E-mail: vth@landicproperty.com