|
|||
2016-03-23 10:13:58 CET 2016-03-23 10:13:58 CET BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Síminn hf. - FyrirtækjafréttirSíminn hf. boðar til fundar með skuldabréfaeigendumFundur Símans hf. með skuldabréfaeigendum í skuldabréfaflokknum SKIPTI 13 01 verður haldinn fimmtudaginn 7. apríl 2016 kl. 16:00 í Ármúla 25, 108 Reykjavík Dagskrá 1. Ákvörðun um að breyta skilmála skuldabréfaflokksins SKIPTI 13 01 (Heimild til fyrirframgreiðslu) 2. Ákvörðun um að breyta skilmála skuldabréfaflokksins SKIPTI 13 01 (Sérstök skilyrði) 3. Ákvörðun um að breyta skilmála skuldabréfaflokksins SKIPTI 13 01 (Veðsetningarbann) 4. Staðfesting um heimild félagsins og Arion banka hf., sem reikningsstofnunar, til að undirrita viðauka við útgáfulýsingu skuldabréfaflokksins SKIPTI 13 01 Atkvæðisréttur skuldabréfaeigenda í skuldabréfaflokknum SKIPTI 13 01 miðast við stöðu krafna þeirra þann 23. mars 2016. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá kl. 15:30 á fundardegi. Tillögur Símans hf. fyrir fundinn og umboðseyðublað er að finna í viðhengjum. Frekari upplýsingar veita Helgi Þorsteinsson, forstöðumaður fjárstýringar, í farsíma 892 6699 og Óskar Hauksson, fjármálastjóri, í farsíma 899 6169. |
|||
|