|
|||
2016-03-23 10:16:11 CET 2016-03-23 10:16:11 CET REGULATED INFORMATION Síminn hf. - FyrirtækjafréttirSíminn hf. boðar til fundar með lánveitendumFundur Símans hf. með Arion banka hf., sem lánveitanda og veðvörsluaðila, og skuldabréfaeigendum í skuldabréfaflokknum SKIPTI 13 01 verður haldinn fimmtudaginn 7. apríl 2016 kl. 16:45 í Ármúla 25, 108 Reykjavík Dagskrá 1. Ákvörðun um að breyta tryggingarbréfi, upphaflega dags. 22. desember 2005, ásamt síðari breytingum. 2. Ákvörðun um að breyta veðskjölunum, eins og þau eru skilgreind í samkomulagi um sameiginleg veð, veðvörslu og ákvarðanatöku, dags. 13. júní 2013, milli Símans hf., Arion banka hf., sem lánveitandi og veðvörsluaðili, og eigenda skuldabréfa í skuldabréfaflokknum SKIPTI 13 01 Atkvæðisréttur lánveitenda miðast við stöðu krafna þeirra þann 23. mars 2016. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá kl. 15:30 á fundardegi. Tillögur Símans hf. fyrir fundinn og umboðseyðublað er að finna í viðhengjum. Frekari upplýsingar veita Helgi Þorsteinsson, forstöðumaður fjárstýringar, í farsíma 892 6699 og Óskar Hauksson, fjármálastjóri, í farsíma 899 6169. |
|||
|