2009-11-17 17:40:00 CET

2009-12-07 10:54:42 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisbréfa RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612


Föstudaginn 20. nóvember kl. 14:00 fer fram útboð í tveimur flokkum ríkisbréfa
með tilboðsfyrirkomulagi hjá Lánamálum ríkisins. 

Í þessu útboði verða seld bréf í RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612.  Ákvörðun um
útboðsfjárhæð verður tilkynnt að loknu útboði. 

Lánamál ríkisins áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa
er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Lánamál ríkisins mun ekki samþykkja tilboð í RIKB 11 0722 sem eru yfir 7,5%
ávöxtunarkröfu. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 25. nóvember 2009.

Í þessu útboði óskar Lánamál ríkisins eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokka
ríkisverðbréfa: 

Flokkur		Lokagjalddagi	Útistandandi fjárhæð*	Lánstími
RIKB 11 0722	22.07.2011	6.622 m.kr.		1,7 ár
RIKB 25 0612	12.6.2025	19.617 m.kr.		15,6 ár
*að nafnverði

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir mun Lánamál ríkisins bjóða
jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til
aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 24.
nóvember  Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 25. nóvember 2009.