2013-01-11 12:46:00 CET

2013-01-11 12:46:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 13 0415 og RIKV 13 0715


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 13 0415 og RIKV 13 0715  með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 13 0415:
Alls bárust 7 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 6.350 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 5.950 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,206 (flatir
vextir 3,20%). 

RIKV 13 0715:
Alls bárust 6 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.800 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 1.300 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,319 (flatir
vextir 3,40%).