|
|||
2013-03-22 15:28:02 CET 2013-03-22 15:29:05 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - ÁrsreikningurRekstrarhagnaður Orkuveitunnar 14,7 milljarðar krónaÁhersla á niðurgreiðslu skulda Reykjavík, 2013-03-22 15:28 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- -Ársreikningur 2012 samþykktur í dag -Árangur Plansins 1,8 milljarða umfram áætlun -Skuldir ennþá miklar og eigið fé of lítið Rekstrarhagnaður Orkuveitu Reykjavíkur (EBIT) nam 14,7 milljörðum króna á árinu 2012 en var 12,4 milljarðar 2011. Frá árinu 2010 hafa rekstrartekjur fyrirtækisins aukist um 36% en rekstrarkostnaður dregist saman um 8%. Þetta mikla aðhald í rekstri, aukin raforkusala og veitutekjur sem halda raunvirði eru helstu ástæður bættrar afkomu. Framlegð reksturs samstæðu Orkuveitunnar 2012 (EBITDA) nam 25 milljörðum króna og hækkaði um 18% frá síðasta ári. Ársreikningur samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur var samþykktur af stjórn í dag. Hann er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS. Planið á áætlun Frá vori 2011 hefur Orkuveitan verið rekin í samræmi við aðgerðaáætlun fyrirtækisins og eigenda, Planið. Markmið þess var að bæta sjóðstreymi Orkuveitunnar um 50 milljarða króna á árabilinu 2011 til og með 2016. Í lok árs 2012 voru allir þættir þess á áætlun, sumir gott betur, nema sala eigna. Með aðgerðum stjórnar og eigenda síðustu vikur hefur sá þáttur aftur komist á sporið. Þannig var staðfest á stjórnarfundi Orkuveitunnar í dag að sala Perlunnar fyrir 950 milljónir króna mun ganga eftir og forstjóri fékk heimild stjórnar til að ganga frá samningi um sölu höfuðstöðvanna að Bæjarhálsi fyrir 5,1 milljarð króna. Áfram er unnið að sölu fleiri eigna. Þrátt fyrir að eignasala hafi tafist er árangur Plansins frá samþykkt þess til ársloka 2012 um 1,8 milljarða króna umfram áætlun. Óhagfelld ytri áhrif Ytri þættir voru rekstrinum áfram óhagfelldir á árinu 2012. Álverð lækkaði og gengi íslensku krónunnar veiktist. Þetta hefur áhrif á reiknað verðmæti raforkusölusamninga Orkuveitunnar við stóriðju og skuldir í erlendum gjaldmiðlum hækka. Samanlögð áhrif þessa og fleiri reiknaðra fjárhagsstærða í rekstrareikningi Orkuveitunnar eru neikvæð sem nemur 13,4 milljörðum króna. Af þessum sökum er heildarniðurstaða ársreikningsins neikvæð sem nemur 2,3 milljörðum króna. Markvisst er unnið að því að draga úr áhættu í rekstrinum vegna þróunar álverðs, gengis og vaxta með samningum við íslenskar og erlendar fjármálastofnanir. Stjórn Orkuveitunnar samþykkti á fundi sínum í dag að gera samninga um gjaldeyrislán frá erlendum og innlendum bönkum og umfangsmikla áhættuvarnarsamninga gegn sveiflum í gengi gjaldmiðla og vöxtum. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur: Þessi árangur í rekstrinum er mörgum að þakka; stjórn fyrirtækisins, eigendum þess, starfsmönnum hverjum og einum og ekki síst viðskiptavinum. Sú markvissa stefna, sem mótuð var í Planinu vorið 2011, hefur gert okkur kleift að róa öll í sömu áttina. Rekstrarniðurstaða ársins sýnir að okkur hefur ekki borið af leið. Sá árangur hefur aflað okkur trausts á fjármálamörkuðum og gert okkur kleift að grípa til frekari aðgerða til að treysta fjárhagsstöðuna Árið 2013 er erfiðasta ár Plansins. Nú þegar hefur tekist að létta á afborgunum með samningum við erlenda lánveitendur og þær ráðstafanir sem stjórnin samþykkti í dag að grípa til eru ávöxtur erfiðis okkar. Nú sjáum við fram á að komast yfir þann hjalla, sem árið 2013 er í framgangi Plansins. Það er mjög ánægjulegt og mikilvægt er að missa ekki sjónar á því að Orkuveituna á um alla framtíð að reka með hagkvæmni að leiðarljósi. Skuldir eru enn miklar og eigið fé of lágt. Rekstraryfirlit stjórnenda Allar fjárhæðir eru í milljónum króna á verðlagi hvers árs. Rekstur 2008 2009 2010 2011 2012 -------------------------------------------------------------------------------- Rekstrartekjur 24.168 26.013 27.916 33.626 37.905 -------------------------------------------------------------------------------- Rekstrarkostnaður (12.517) (13.042) (13.964) (12.391) (12.861) -------------------------------------------------------------------------------- EBITDA 11.652 12.970 13.951 21.235 25.044 -------------------------------------------------------------------------------- Afskriftir (6.953) (7.814) (7.962) (8.881) (10.371) -------------------------------------------------------------------------------- Rekstrarhagnaður EBIT 4.699 5.157 5.989 12.354 14.673 -------------------------------------------------------------------------------- Innleystar fjármunatekjur og (3.364) (4.258) (3.424) (3.635) (5.169) (fjármagnsgjöld) -------------------------------------------------------------------------------- Afkoma fyrir óinnleysta 1.334 898 2.565 8.719 9.504 fjármagnsliði -------------------------------------------------------------------------------- Óinnleystir fjármagnsliðir (89.435) (4.812) 14.201 (16.027) (13.334) -------------------------------------------------------------------------------- Afkoma fyrir tekjuskatt skv. (88.101) (3.914) 16.766 (7.307) (3.830) árshlutareikningi -------------------------------------------------------------------------------- Tekjuskattur 15.064 1.398 (3.037) 6.751 1.535 -------------------------------------------------------------------------------- Afkoma tímabilsins (73.037) (2.516) 13.729 (556) (2.295) -------------------------------------------------------------------------------- Tengiliður: Bjarni Bjarnason, forstjóri 516 7707 |
|||
|