2015-09-17 17:23:50 CEST

2015-09-17 17:24:51 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Akureyrarbær - Fyrirtækjafréttir

Akureyrarbær - Sala skuldabréfa


Akureyrarbær, í samstarfi við verðbréfamiðlun Íslenskra verðbréfa, mun þann 22.
september næstkomandi bjóða til sölu skuldabréfið AKU 10 1 sem er stækkanlegur
skuldabréfaflokkur sveitarfélagsins. Sala hinna nýju skuldabréfa fer fram í
samræmi við samþykkt bæjarráðs Akureyrar 17. september og verður salan með
útboðsfyrirkomulagi.   Leitað verður tilboða í lántöku að fjárhæð allt að kr.
650.000.000 að nafnverði með stækkun á flokknum. „Hollensk” uppboðsaðferð þar
sem allir tilboðsgjafar fá sömu ávöxtunarkröfu og hæst er tekið 

Áhugasömum fjárfestum er bent á að hafa samband við verðbréfamiðlun Íslenskra
verðbréfa. Tekið verður við tilboðum til klukkan 16:00 þriðjudaginn 22.
september n.k. Akureyrarbær áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum að
hluta til eða í heild. Gert er ráð fyrir að skuldabréfin verði tekin til
viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland þann  30. september n.k. 





Frekari upplýsingar veitir Baldur Snorrason hjá Íslenskum verðbréfum,
baldur@iv.is