2013-05-31 13:16:58 CEST

2013-05-31 13:17:59 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Skipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsleg endurskipulagning skulda Skipta og framsal skuldabréfa félagsins þar til endurskipulagningu hefur verið lokið


Um fjárhagslega endurskipulagningu skulda Skipta hf. og framsal skuldabréfa
félagsins þar til endurskipulagningu hefur verið lokið 

Fram kom í tilkynningu Skipta hf. dags. 30. apríl 2013 að Arion banki hf. og
eigendur skuldabréfaflokksins SIMI 06 01 hafa gerst aðilar að samningi um
endurskipulagninguna. 

Skipti hf. hefur að undanförnu unnið að því að leiða fjárhagslega
endurskipulagningu félagsins til lykta, sem felst einkum í því að tryggja að ný
fjármögnun félagsins liggi fyrir í undirrituðu eða samþykktu horfi eigi síðar
en 30. júní 2013. 

Vonir standa til þess að endurskipulagningunni ljúki þann 20. júní nk. með því
að öll hlutabréf í félaginu verði afhent Arion banka hf. og eigendum
skuldabréfaflokksins SIMI 06 01. Á sama tíma munu eigendur skuldabréfaflokksins
SIMI 06 01 afhenda skuldabréf sín í gegnum reikningsstofnanir sínar til Skipta
hf., og reikna má með því að skuldabréfin verði afskráð úr kauphöll í
framhaldinu. 

Í samningnum um endurskipulagninguna skuldbinda eigendur  skuldabréfaflokksins
SIMI 06 01 til þess að framselja ekki skuldabréf sín án heimildar Skipta hf.
Nýverið hafa félaginu borist óskir um að það heimili framsal skuldabréfa og
hefur félagið því ákveðið að setja verklagsreglur um veitingu slíks samþykkis. 

Verklagsreglurnar fela það í sér að seljendur og kaupendur skuldabréfa
undirrita beiðnir um framsal skuldabréfa og koma þeim til þeirra
fjármálafyrirtækja er aðstoða þau við viðskiptin, en form af slíkum beiðnum má
nálgast hjá félaginu. Samkvæmt beiðnunum er gert ráð fyrir að greiðsla samkvæmt
samningnum að fjárhæð kr. 2.000.000, sem verður greidd til hvers eiganda
skuldabréfa miðað við skráða eigendur þann 27. mars sl., skuli greidd til
seljanda, en ekki kaupanda. Enn fremur er gert ráð fyrir að kaupandi skuldbindi
sig til þess að framselja ekki skuldabréfin án samþykkis félagsins. Þá er gert
ráð fyrir að réttindi seljanda samkvæmt samningnum séu framseld til kaupanda og
að kaupandi undirgangist skuldbindingar seljanda samkvæmt samningnum.
Nauðsynlegt er að félagið hafi ráðrúm til þess að skipuleggja efndadag
samningsins og mun félagið því ekki veita samþykki um framsal skuldabréfanna
eftir 13. júní 2013. 

Félagið áréttar  ánægju sína með fjárhagslega endurskipulagningu skulda þess og
vonast til þess að áætlanir um lok hennar gangi eftir eins og gengið er út frá.
Skipti hf. horfir því áfram björtum augum fram á við og halda félagið og
dótturfélögin áfram öflugri uppbyggingu á fjarskiptainnviðum, fjarskiptakerfum
og þjónustu við viðskiptavini um land allt. 



Frekari upplýsingar veita

Steinn Logi Björnsson, forstjóri Skipta hf. s. 550-6003

Pétur Þ. Óskarsson, s. 863-6075