2017-02-08 15:33:16 CET

2017-02-08 15:33:16 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing - Ársreikningur

Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing – Ársreikningur fyrir árið 2016


Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing sem er í rekstri Rekstrarfélags Virðingar hf.
gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2014. 

  -- Tap af rekstri sjóðsins nam 8,8 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi
     á árinu 2016.
     
  -- Hrein eign sjóðsins nam 86,8 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
     
  -- Ársreikningurinn var endurskoðaður af Rýni endurskoðun ehf. í samræmi við
     alþjóðlega endurskoðunarstaðla.
Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu
     sjóðsins á árinu 2016, efnahag hans 31. desember 2016 og breytingu á
     hreinni eign á árinu 2016, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um
     reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða og að skýrsla stjórnar hafi að
     geyma þær upplýsingar, komi þær ekki fram annars staðar í ársreikningnum,
     sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga
.

Nánari upplýsingar um ársreikning Veðskuldabréfasjóðsins Virðingar veitir
starfsfólk Rekstrarfélags Virðingar í síma 5856500.