2017-02-08 17:22:17 CET

2017-02-08 17:22:17 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lundey NS seld til Noregs


HB Grandi hefur selt uppsjávarveiðiskipið Lundey NS til Noregs. Söluverðið er
1,1 milljón bandaríkjadollarar eða jafnvirði um 124 milljóna íslenskra króna.
Kaupandi er norska útgerðarfélagið Partrediet Karolös ANS í Bekkjarvik og
staðgreiðir það skipið. 

Samkvæmt upplýsingum Vilhjálms Vilhjálmssonar, forstjóra HB Granda, hefur
kaupandinn fengið tilraunaveiðileyfi á laxsíld, m.a. á gulldeplu sem íslensk
skip veiddu um hríð, hjá norskum yfirvöldum og verður skipið notað til þeirra
veiða. Áformað er að sigla Lundey til Noregs um næstu helgi. 

Lundey var smíðuð árið 1960 í Rendsburg í Þýskalandi. Áður en skipið komst í
eigu HB Granda hét skipið Guðrún Þorkelsdóttir SU og var það gert út frá
Eskifirði. Lundey er 62,95 metrar milli lóðlína og 10,40 metrar að breidd og
mælist skipið 836 brúttórúmlestir. Lundey var lagt haustið 2015 vegna komu
Venusar NS til landsins.