|
|||
2017-02-10 09:59:09 CET 2017-02-10 09:59:09 CET Síminn hf. - FjárhagsdagatalSíminn hf. - Uppgjör 4. ársfjórðungs 2016 verður birt eftir lokun markaðar 16. febrúar 2017Kynningarfundur verður haldinn 17. febrúar kl. 8:30 Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung 2016 ásamt uppgjöri fyrir árið 2016 eftir lokun markaðar þann 16. febrúar næstkomandi. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn föstudaginn 17. febrúar 2017 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri, Óskar Hauksson fjármálastjóri og Sigríður Hrólfsdóttir formaður stjórnar kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/ og í fréttakerfi Nasdaq Iceland. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni: https://livestream.com/accounts/11153656/events/6987299/player Nánari upplýsingar: Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 (orri@siminn.is) Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 (oskarh@siminn.is) |
|||
|