|
|||
2009-03-19 17:00:25 CET 2009-03-19 17:01:50 CET REGULATED INFORMATION Össur hf. - FyrirtækjafréttirYfirlýsing frá Össuri hf.Birst hafa fréttir um mögulegt yfirtökutilboð í Össur hf. Félagið og tilteknir hluthafar þess hafa átt í viðræðum við mögulega kaupendur um kaup á hlut í félaginu, en slík viðskipti hafa ekki verið ákveðin og engar ásættanlegar tillögur hafa borist. Stjórnendur félagsins eiga ekki von á að viðskipti á þeim nótum sem nefnd voru í fréttinni muni eiga sér stað á næstunni, þótt gera megi ráð fyrir að tilteknir hluthafar muni áfram vinna að sölu hluta sinna í félaginu. |
|||
|