2012-11-22 13:14:28 CET

2012-11-22 13:15:30 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsbréf hf. - Fyrirtækjafréttir

Viðskipti með sjóði Landsbréfa


Í kjölfar opnunar Kauphallar í morgun þar sem lokað var fyrir viðskipti með
Íbúðabréf taldi stjórn Landsbréfa hf. hagsmuni sjóðfélaga í sjóðum Landsbréfa
hf. sem eiga Íbúðabréf útgefin af Íbúðalánasjóði, best tryggða með því að loka
á viðskipti með hlutdeildarskírteini í þeim sjóðum á meðan óvissa ríkti um
verðmyndun undirliggjandi eigna. 

Þar sem forsendur þessar lokunar eru ekki lengur til staðar hefur stjórn
Landsbréfa hf. ákveðið að opna fyrir viðskipti með hlutdeildarskírteini
sjóðanna. 



Landsbréf munu fylgjast vel með framvindu mála, sérstaklega með það í huga að
tilkynnt hefur verið að ekki muni verða viðskiptavakt með Íbúðabréf í dag. 



Um er að ræða eftirtalda skráða sjóði Landsbréfa:

Markaðsbréf, kt. 670898-9469

Sparibréf löng, kt. 600390-9379