2014-05-08 20:27:00 CEST

2014-05-08 20:28:00 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

Landsbankinn hf.: Samkomulag Landsbankans hf. og LBI um breytingar á skilmálum skuldabréfa


Landsbankinn hf. og slitastjórn LBI hf. hafa komist að samkomulagi um
breytingar á uppgjörsskuldabréfum sem samið var um í desember 2009, en
eftirstöðvar þeirra eru nú að jafnvirði um 226 milljarðar króna. Af hálfu
slitastjórnar LBI hf. er gerður fyrirvari um að tilteknar undanþágur fáist í
samræmi við lög um gjaldeyrismál. 

Lokagreiðsla verður innt af hendi í október 2026 í stað október 2018.
Endurgreiðslur verða á tveggja ára fresti og dreifast nokkuð jafnt.
Landsbankinn hefur heimild til að greiða skuldina að hluta eða að fullu upp án
kostnaðar, hvenær sem er á tímabilinu. 

Vaxtakjör verða óbreytt til október árið 2018, þ.e. 2,9% álag ofan á LIBOR
vexti. Eftir það fer vaxtaálagið stighækkandi og verður 3,5% vegna gjalddaga
2020 og að lokum 4,05% vegna lokagjalddagans árið 2026. Hver gjalddagi á
tímabilinu frá 2020 til 2026 er að jafnvirði um 30 milljarða íslenskra króna. 

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans: “Skilmálarnir eru mjög vel
viðráðanlegir fyrir Landsbankann og mun þessi breyting auðvelda honum
alþjóðlega lánsfjármögnun. Þá felur samkomulagið í sér að sérstökum hömlum á
arðgreiðslur hefur verið hrundið úr vegi, til hagsbóta fyrir hluthafa bankans.
Samkomulagið er jafnframt mikilvægur þáttur í að leysa úr þeim stóru
viðfangsefnum sem tengjast skuldastöðu þjóðarbúsins og afnámi gjaldeyrishafta.
Við teljum þennan áfanga því mjög mikilvægan fyrir íslenskt efnahagslíf sem og
Landsbankann.” 

Skuldabréfin voru upphaflega gefin út á grundvelli ákvarðana
Fjármálaeftirlitsins samkvæmt ákvæðum neyðarlaganna. Fjárhæðin var ákveðin sem
mismunur á virði eigna og skulda sem fluttar voru yfir til Landsbankans. 

Unnið er að endanlegri skjalagerð.



Nánari upplýsingar veitir:

Kristján Kristjánsson - pr@landsbankinn.is, 410 4011 & 899 9352