2014-05-07 15:51:32 CEST

2014-05-07 15:52:32 CEST


Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Fjárhagsdagatal

Tryggingamiðstöðin hf.: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2014 birt þann 14. maí


TM mun birta árshlutauppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2014 eftir lokun markaða
miðvikudaginn 14. maí næst komandi. 

TM býður markaðsaðilum á kynningarfund um afkomu félagsins á fyrsta
ársfjórðungi kl. 8:30 fimmtudaginn 15. maí. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum
TM að Síðumúla 24. 4. hæð. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið
og svara spurningum. 

Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins
www.tm.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað að við
upphaf kynningarfundar.