|
|||
2012-08-08 13:18:07 CEST 2012-08-08 13:19:08 CEST REGULATED INFORMATION Eyrir Invest ehf. - FyrirtækjafréttirEyrir Invest áætluð afkoma á fyrri árshelmingi 2012Áætlaður hagnaður Eyris Invest á H1 2012 er 14-19 milljónir evra Lykileignir Eyris eru 33% eignarhlutur í Marel og 17% eignarhlutur í Stork BV sem á og rekur Stork Technical Services og Fokker Technologies. Hlutabréf Marel eru skráð á Nasdaq OMX Iceland og Stork BV er óskráð félag með höfuðstöðvar í Hollandi. Eyrir færir eignarhluti í óskráðum lykileignum á gangvirði (e. fair value). Afkoma Eyris Invest á H1 2012 samanstendur að mestu af hækkun á hlutabréfaverði Marel og lækkun á virðismati á eignarhlut Eyris í Stork vegan markaðsaðstæðna. Fjárhagsstaða Eyris er traust með heildareignir nærri 400 milljónum evra og eiginfjárhlutfall yfir 50%. Áætlaður hagnaður á fyrri árshelmingi 2012 er á bilinu 14-19 milljónir evra eftir skatta. Eyrir Invest birtir hálfsársuppgjör 2012 í viku 33. Um Eyrir Invest Eyrir er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem leggur ríka áherslu á virka þátttöku í rekstri og stefnumörkun lykileigna sinna. Kjölfestueignir Eyris eru 33% hlutur í Marel og 17% hlutur í Stork BV sem á og rekur iðnfyrirtækin Stork Technical Services og Fokker Technologies. Á síðustu árum hefur Eyrir aukið vægi sprotafjárfestinga í eignasafni sínu. Kaupa og styðja til vaxtar“ stefna Eyris hefur skilað góðri ávöxtun frá stofnun félagsins árið 2000. |
|||
|