2012-11-27 11:57:30 CET

2012-11-27 11:58:31 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning frá Íbúðalánasjóði vegna fréttar á Bloomberg-fréttaveitunni í morgun


Haft er eftir formanni velferðarnefndar Alþingis að  Íbúðalánasjóður þurfi  að
endursemja um skilmála skulda sinna og þar með að fá eigendur skuldabréfanna
til að samþykkja skilmálabreytingu sem heimilaði sjóðnum uppgreiðslu skulda
sinna. 

Tekið skal fram að ekki er unnið að breytingu á skilmálum skuldabréfa
Íbúðalánasjóðs og engar ákvarðanir um slíkt hafa verið teknar, enda er slík
skilmálabreyting óframkvæmanleg nema í fullu samstarfi við eigendur
fjármögnunarbréfa sjóðsins.