|
|||
![]() |
|||
2015-12-03 10:14:34 CET 2015-12-03 10:14:34 CET REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - FyrirtækjafréttirNýherji hf. eykur hlutafé um allt að 40 milljónir hlutaStjórn Nýherja hf. hefur ráðið Kviku banka hf til að annast lokað hlutabréfaútboð til hæfra fjárfesta Stjórn Nýherja hf. (NYHR:IC) hefur í dag ákveðið að bjóða út allt að 40 milljónir hluta eða um 9,76% í lokuðu hlutafjárútboði til hæfra fjárfesta. Stjórn hefur jafnframt gert samkomulag við Kviku banka hf. um að annast útboðið. Stjórn félagsins mun nýta heimild til hlutafjárhækkunar sem samþykkt var á aðalfundi þann 14. mars 2014, þar sem hluthafar félagsins féllu frá forgangsrétti að hinum nýju hlutum. Markmið með útboðinu er að styrkja eigið fé Nýherjasamstæðunnar og styðja enn frekar við lausnaþróun og þann tekjuvöxt sem hefur verið hjá félaginu síðustu misseri. Unnið er að útfærslu skilmála og sölufyrirkomulagi. Gert er ráð fyrir að útboðinu verði lokið í desember 2015. Nánari upplýsingar verða sendar til kauphallar þegar niðurstöður útboðsins liggja fyrir. NÝHERJI HF. Nýherji hf.(NASDAQ OMX: NYHR.IC) er samstæða fyrirtækja í upplýsingatækni. Nýherji er þjónustufyrirtæki og hlutverk þess felst í að aðstoða viðskiptavini að ná enn betri árangri í sínum rekstri með aðstoð upplýsingatækni, sérfræðiþekkingu starfsfólks og lipurri þjónustu. Hjá móðurfélaginu starfa 250 manns en hjá samstæðunni um 500. Dótturfélög Nýherja eru TM Software, TEMPO og Applicon, á Íslandi og í Svíþjóð. Nýherji er skráð í Kauphöll Íslands. Nánari upplýsingar er að finna á www.nyherji.is Nánari upplýsingar Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen framkvæmdarstjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is. Til athugunar fyrir fjárfesta Nýherji vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna af birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum. |
|||
|