2008-05-23 12:57:00 CEST

2008-06-03 16:31:33 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

- Undirritun samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði


Í morgun var skrifað undir samninga hjá Seðlabanka Íslands í tengslum við
útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningnum
er að viðhalda aðgengi ríkissjóðs að lánsfé og efla verðmyndun ríkisverðbréfa á
eftirmarkaði. 

Frá 1. júní 2008 hafa sjö fjármálastofnanir heimild til að kalla sig
„aðalmiðlara með ríkisverðbréf“. Þær eru: Glitnir, Icebank, Kaupþing,
Landsbanki Íslands, MP Fjárfestingarbanki, Straumur-Burðarás Fjárfestingarbanki
og Saga Capital Fjárfestingarbanki. 

Helstu atriði samningsins eru þessi:
•Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum ríkissjóðs.

•Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að verðbréfalánum sem Seðlabanki Íslands veitir
fyrir hönd ríkissjóðs. 

•Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram tilboð í útboðum ríkisverðbréfa
fyrir a.m.k. 100 milljónir króna að nafnverði. 

•Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka
ríkisverðbréfa og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 100 m.kr. að
nafnvirði í hvern flokk í OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi. 

•Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að halda verðmun kaup- og sölutilboða
innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningunum. 

•Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim
hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir 600
m.kr. að nafnvirði í tilteknum flokki er honum heimilt að víkja út frá
hámarksmun kaup- og sölutilboða þann dag. 

•Samningurinn gildir frá 1. júní 2008 til 31. maí 2009. Þóknun til allra
aðalmiðlara ríkisverðbréfa á samningstímanum verður samtals 160 m.kr. 

Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi þar sem fram koma ýtarlegri upplýsingar
um réttindi og skyldur aðalmiðlara ríkisverðbréfa.