2008-09-24 13:24:06 CEST

2008-09-24 13:24:19 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kaupþing banki hf. - Fyrirtækjafréttir

Útboð á samningsbundnum sértryggðum skuldabréfum



Kaupþing banki hf. tilkynnir útboð á samningsbundnum sértryggðum
skuldabréfum (e. Structured Covered Bonds), með lánshæfismat Aaa frá
Moody's, til fagfjárfesta vegna fjármögnunar á nýjum íbúðalánum.
Þetta er í samræmi við þá stefnu bankans að útboð á samningsbundnum
sértryggðum skuldabréfum til fjármögnunar á nýjum íbúðalánum fari
fram að lágmarki ársfjórðungslega. Bréfin eru með lokagjalddaga
annars vegar 2033 og hins vegar 2048, verðtryggð með föstum vöxtum út
lánstímann og skráð á OMX Nordic Exchange á Íslandi.

Vextir á nýjum íbúðalánum Kaupþings ráðast af niðurstöðu útboðsins,
að viðbættu 90 punkta álagi. Markmið bankans með þessu fyrirkomulagi
er að auka gegnsæi í vaxtamyndun á íbúðalánum bankans.

Útboðið verður með áskriftarfyrirkomulagi og stendur til klukkan
16:00 (að íslenskum tíma) föstudaginn 26. september 2008. Tilboðum
skal beina til Markaðsviðskipta Kaupþings.

Nánari upplýsingar:
Benedikt Sigurðsson upplýsingafulltrúi, í síma 444-6775